Velkomin(n) til Icelandic Fury

”homo erectus”

“Lífið er DEMÓ”

Eins og nafnið bendir til er hópurinn sem að þessu verki stendur, algjörlega ófyrirsjáanlegur og ekki treystandi til að gæta hlutleysis í einu eða neinu sem varðar tilveru manneskjunnar á jarðkúlu vorri, sem því miður virðist vera í algjöri niðurníðslu ef marka má þær fregnir sem fréttasnápar skrifa í dag. Siðgæði og réttlæti virðist vera fótum troðið og sálir með.

Iðnvæðing er tröll og eðlið er að tröllríða menningarlífi alþjóða, og náttúran sem fórnalamb er afkoman.

Hér getið þið verslað tónlist “homo erectus” fyrir lítinn pening og CD-skífur má einnig panta hér fyrir þá óþolimóðu er hægt að nálgast CD-skífur á einum besta matsölustað í heimi, nefnilega í “Brautarstöðin” Ármúla 42 Rvk.

Það mun koma meira frá okkur, með gálga og gleði.

www.icelandicfury.com

Ekkert er heilagt, við erum öll heilög!!!